Nöfn
Greinar
Uppáhalds
LeikurMannanöfnUm Veldu nafn
Útlit

Um Veldu nafn

Veldu nafn er gagnagrunnur íslenskra mannanafna. Finndu nöfn fyrir börn, gæludýr, persónur í bók eða bara af forvitni. Búðu til lista og deildu með öðrum.

Nánar um verkefnið

Flýtileiðir

Öll nöfnStúlkunöfnDrengjanöfnGreinarMannanöfn á ÍslandiUppáhaldsnöfn

Tól

Nafn dagsinsBera saman nöfnMá nefna barnið …?Fullt nafn

Hafa samband

hallo@veldunafn.is

Gögn fengin frá Þjóðskrá Íslands

Nafnaskýringar að hluta byggðar á Nöfnum Íslendinga, Stofnun Árna Magnússonar

Skýringar á erlendum nöfnum að hluta byggðar á Behind the Name og Nordic Names

© 2026 Veldu nafn

Búið til með á Íslandi

  • Forsíða
  • Nöfn
  • Uppáhalds

Nafnalisti yfir íslensk mannanöfn

Lengd1–14 stafir
1
14
Atkvæði1–6 atkvæði
1
6
8nöfn2 síur

Raða eftir

Síða 1
  • Ymur
    Drengur✓Samþykkt20. feb 2020·2 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er ef til vill fengið frá nafnorðinu „ymur“ sem merkir „hljómur, niður; hávaði“, og þá skylt sögninni að „ymja“ sem merkir „hljóma, niða; umla, stynja“.

  • Yrkir
    Drengur✓Samþykkt3. okt 2019·2 atkv.·2 bera nafnið

    Nafnið er dregið af sögninni „yrkja“ sem merkir „semja, skálda“ en einnig „rækta (jörð)“. „Yrkir“ væri þá „sá sem ræktar“.

  • Ylfingur
    Drengur✓Samþykkt27. okt 2017·3 atkv.·1 ber nafnið

    Nafnið er sótt til nafnorðsins „ylfingur“ sem merkir „úlfsungi“.

  • Ylur
    Drengur✓Samþykkt14. jan 2004·2 atkv.·19 bera nafnið

    Nafnið er dregið af nafnorðinu „ylur“ sem merkir hlýja, hlý tilfinning.

  • Yrkill
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·2 bera nafnið

    Nafnið er myndað af sögninni „yrkja“ í merkingunni „rækta“ og viðskeytinu „-ill“ sem notað er til að mynda nafnorð af sögnum. Nafnið er því tengt orðunum „yrkja“, „yrking“ og „yrki“ „verk“.

  • Yngvi
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·174 bera nafnið

    Nafnið kemur fyrir í Ynglingatali Þjóðólfs úr Hvini frá 9. öld. Í formála Snorra-Eddu segir að Óðinn hafi haft með sér til Svíþjóðar son sinn er Yngvi hét og að frá honum séu komnar ættir Ynglinga. Í Ynglinga sögu segir að Freyr hafi heitið Yngvi öðru nafni og að nafnið hafi síðan lengi verið haft sem tignarnafn í ætt hans, en ættmenn hans voru kallaðir Ynglingar. Í ritinu „Germaníu“ eftir Tacitus er sagt frá sonum Mannusar en einn þeirra var ættfaðir Ingveóna. Uppruni nafnsins er óviss og umdeildur en það hefur verið tengt gríska orðinu „énchos“ sem merkir „spjót“.

  • Yngvar
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·8 bera nafnið

    Sama og Ingvar.

  • Ymir
    Drengur✓Samþykkt·2 atkv.·2 bera nafnið

    Sama/svipað og Ýmir.

Auglýsing

Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.

Hafðu samband um auglýsingapláss →