Raða eftir
Kaija er finnskt gælunafn af nafninu Katariina (Katrín), sem er komið af gríska nafninu Aikaterine.
Kanína er íslenskt kvenmannsnafn af orðinu kanína, sem er lítið, loðið nagdýr af hérakyni.
Kristinna er kvenmannsnafn skylt Kristínu (Christina), sem er af latneska Christiana og merkir „fylgjandi Krists“ (kristin kona).
Nafnið er sett saman af forliðnum „Krist-“ og nafnorðinu „mey“ sem merkir mær, stúlka.
Uppruni er óviss. Ef til vill sama orð og „kilja“ sem merkir bók, eða nafnið er dregið af karlmannsnafninu „Kiljan“.
Nafnið er líklegast myndað af karlmannsnafninu „Konstantínus“ með viðskeytinu „-a“, sbr. einnig „Konstantía“.
Kaja þekkist í Danmörku allt frá 14. öld sem stytting á „Katarina“. Það var talsvert notað í Noregi um aldamótin 1900 og aftur eftir 1970 í myndinni „Kaia“, og hefur í Svíþjóð verið notað frá 19. öld. Nafnið hefur í sumum tilvikum borist hingað beint frá einhverju Norðurlanda en í öðrum er um að ræða gælumynd nafnsins „Karitas“.
Kaia er norskt og eistneskt gælunafn af nafninu Katarína (Katrín). Katarína er af gríska nafninu Aikaterine, sem oft er tengt orðinu „katharos“ („hreinn“), þótt uppruni sé óviss.
Uppruni nafnsins er óviss en ef til vill liggur nafnið „Klara“ að baki með viðskeytinu „-ía“.
Kisa er íslenskt kvenmannsnafn dregið af orðinu kisa, sem er gæluorð yfir kött, einkum kettling eða læðu.
Nafnið er hebreskt að uppruna og er talið merkja „horn á dýri“.
Nafnið er dregið af nafnorðinu „klöpp“ sem merkir sléttur, flatur klettur.
Karna er norrænt gælunafn, meðal annars stytting á Katrínu (Katarina). Katrín er af gríska nafninu Aikaterine, oft tengt orðinu „katharos“ („hrein“), en uppruni er óviss.
Nafnið kemur frá Bandaríkjunum. Tekakwitha (1656-1680), sem var af flokki Mohawk frumbyggja, gerðist kaþólsk og tók þá upp nafnið „Kateri“ sem var aðlögun Mohawk frumbyggja að nafninu „Cathrine“, sbr. „Katrín“. „Kateri“ er dýrlingur innan kaþólsku kirkjunnar.
Að baki nafninu liggur nafnorðið „kvika“ sem merkir „undiralda, brotsjór, bylgja, kviksyndi“.
Nafnið er samsett úr karlkynsorðinu „karl“ og viðskeytinu „-ynja“ sem er sérhæft til afleiðslu kvenheita af karlkynsorðum, líkt og „ásynja“ af „ás“, „úlfynja“ af „úlfur“ og „ljónynja“ af „ljón“.
Þetta er algengt breskt gælunafn kvenna sem bera nafn sem hefst á „Kat(h)-“.
Nafnið er sett saman af forliðnum „Krist-“ og nafninu „Ólína“. Hliðarmynd er „Kristólín“ sem samþykkt var á mannanafnaskrá árið 2019.
„Katra“ er nafn á gistihúsum fyrir lestarmenn í Austurlöndum og þekkist einnig sem örnefni á Indlandi. Merking og uppruni eiginnafnsins er þó óviss.
Nafnið er annaðhvort rússneskt, leitt af nafnmyndinni „Kyra“ sem aftur er leidd af grísku myndinni „Kyros“ sem merkir „veldi, máttur“, eða írskt, leitt af „Ciara“, en heilög Ciara var írsk nunna sem stofnaði klaustur á Kilkeary á 7. öld.
Að baki nafninu liggur fuglsheitið „kráka“, eða þá er um kvenmannsnafn að ræða myndað eftir karlmannsnafninu „Krákur“ með viðskeytinu „-a“.
Karma er komið af sanskrítorðinu „karma“ sem merkir „verk, gjörð, örlög“. Hugtakið er þekkt úr búddisma og hindúisma um orsök og afleiðingu gjörða.
Uppruni óviss. Nafnið gæti verið hið sama og norska nafnið „Kari“ sem er hliðarmynd við „Karin“ eða „Karen“, eða lagað að karlmannsnafninu „Kári“.
Kaja þekkist í Danmörku allt frá 14. öld sem stytting á „Katarina“. Það var talsvert notað í Noregi um aldamótin 1900 og aftur eftir 1970 í myndinni „Kaia“, og hefur í Svíþjóð verið notað frá 19. öld. Nafnið hefur í sumum tilvikum borist hingað beint frá einhverju Norðurlanda en í öðrum er um að ræða gælumynd nafnsins „Karitas“.
Uppruni er óviss en hugsanlega er um upphaflegt gælunafn að ræða, t.d. myndað af „Kristín“ eða „Kristjana“. Í Noregi þekkist „Kikki“ sem gælumynd kvenna sem heita „Kristine“.
Nafnið er ef til vill myndað af karlmannsnafninu „Kalmar“ með viðskeytinu „-a“.
Nafnið „Karun“ þekkist í Noregi sem hliðarmynd við „Karin“ og „Karen“.
„Kala“ er indverskt nafn sem getur merkt „dyggð“ á sanskrít en einnig „tími“. Það er eitthvað notað á Hawaieyjum sem havaísk mynd af „Sarah“. „Kala“ er m.a. nafn á svörtum pardus í kvikmyndinni „Jungle Book“ (Frumskógarbókin), einnig nafn á apa í Tarzanbókunum eftir Edgar Rice Burroughs og nafn á djöfli í indverskri þjóðtrú sem stal ódáinsveigum.
Nafnið er notað víða í Evrópu sem stytting á „Karoline“ og „Karola“, sem tengjast nafninu Karólína.
Nafnið er myndað af karlmannsnafninu „Krummi“ eða fuglsheitinu „krummi“ með viðskeytinu „-a“.
Nafnið er upphaflega spænskt, ummyndun á nafninu „Carmel“ sem komið er úr hebresku og merkir „garður, aldingarður“. María móðir Jesú var oft kennd við fjallið „Carmel“ og á nafnið „Carmen“ rætur að rekja til þess.
Nafnið er sett saman af forliðnum „Krist-“ og viðliðnum „-ý“.
Nafnið er upphaflega grískt en uppruni er óviss. Þekktasti nafnberi fyrr á öldum var heilög Katrín sem dó píslarvættisdauða í Alexandríu árið 307. Um hana spunnust miklar sögur og nafn hennar, sem upphaflega var ritað „Aikaterine“, var tekið upp víða í Evrópu. Snemma var farið að tengja nafnið við gríska orðið „katharós“ „hreinn“ og þaðan kemur rithátturinn með „-th-“ sem tíðkast víða erlendis. Til er Katrínar saga sem segir frá heilagri Katrínu af Alexandríu og út af sögunni var Katrínar drápa ort um 1400.

Nafnið er gælunafn, sótt til eþíópísku í merkingunni „mín“. „Kía“ er einnig sænskt gælunafn kvenna sem heita „Kristín“.
Katý er erlend gælumynd af „Kathrin“, sem er afbrigði af „Katrín“, einkum notuð í enskumælandi löndum en einnig sem tökunafn á Norðurlöndum.
Ef til vill sama nafn og gælunafn tískufrömuðarins Gabrielle Bonheur Chanel, en hún var kölluð „Coco“ allt frá þeim tíma er hún starfaði sem söngkona.
Nafnið er annaðhvort rússneskt, leitt af nafnmyndinni „Kyra“ sem aftur er leidd af grísku myndinni „Kyros“ sem merkir „veldi, máttur“, eða írskt, leitt af „Ciara“, en heilög Ciara var írsk nunna sem stofnaði klaustur á Kilkeary á 7. öld.
Nafn þetta er stytting á nöfnum sem byrja á "Krist-".
Nafnið er erlent, leitt af írska nafninu „Ceallach“ eða eftirnafni af því leiddu, „Ó Ceallaigh“. Í enskumælandi löndum er „Kelly“ einnig algengt ættarnafn.
Kelly er enskuð mynd af írska nafninu Ceallach og ættarnafninu Ó Ceallaigh. Merking írsku rótarinnar er ekki fyllilega viss.
Nafnið er erlent að uppruna og þekkist í Danmörku frá 14. öld, í Noregi frá því eftir siðskipti og í Svíþjóð frá 19. öld. Uppruni er umdeildur: sumir telja það frísneskt með óvissa merkingu, hugsanlega „hæna“, aðrir segja það keltneskt afbrigði af latneska nafninu „Caius“ eða „Gaius“, en enn aðrir telja það þýska styttingu á „Kaganher“.
Nafnið er myndað af karlmannsheitinu „Karl“ með viðskeytinu „-inna“.
Nafnið er upphaflega grískt en uppruni er óviss. Þekktasti nafnberi fyrr á öldum var heilög Katrín sem dó píslarvættisdauða í Alexandríu árið 307. Um hana spunnust miklar sögur og nafn hennar, sem upphaflega var ritað „Aikaterine“, var tekið upp víða í Evrópu. Snemma var farið að tengja nafnið við gríska orðið „katharós“ „hreinn“ og þaðan kemur rithátturinn með „-th-“ sem tíðkast víða erlendis. Til er Katrínar saga sem segir frá heilagri Katrínu af Alexandríu og út af sögunni var Katrínar drápa ort um 1400.
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og nafninu "Ólína".
Kayla er nútímanafn, sett saman úr hljóðliðunum „kay“ og „la“. Það á sér ekki hefðbundna merkingu og varð vinsælt á níunda áratug 20. aldar.
Nafnið er vel þekkt í Noregi sem stytting á „Katrine“ en í Danmörku er það tökunafn úr norsku og sænsku. Íslenska nafnið er annaðhvort íslensk gælumynd eða tökunafn frá Norðurlöndum.
Kristal er komið af enska orðinu „crystal“ (kristall), sem á rætur í gríska orðinu „krystallos“ er merkir „ís“ eða „kristall“.
Uppruni nafnsins er óviss. Ólíklegt er að það tengist nafnorðinu „korka“ sem merkir vanþrif eða vesaldarlegur maður. Líklegra er að það sé sótt í sögu Vilborgar Davíðsdóttur um fjölkunnugu ambáttina Korku eða sé stytting á nafninu Melkorka.
Kalina er slavneskt kvenmannsnafn sem merkir „viburnum-runni“ í búlgörsku, makedónsku og pólsku — blómstrandi runni með hvítum blómum og rauðum berjum.
„Kristin“ er afbrigði af nafninu „Kristín“, sem er þekkt hér frá 13. öld og kemur fyrir í Sturlungu og víða í fornbréfum. Nafnið er upphaflega myndað af latneska orðinu „christiana“, sem merkir „sú sem fylgir Kristi“, og er því í raun stytting á „Kristjana“. Nafnið er notað víða um Evrópu í ýmsum myndum.
Nafnið er erlent að uppruna. Giskað hefur verið á að það sé sett saman af nöfnunum „Kenneth“ og „Alexandra“ eða „Sandra“.
Nafnið gæti hafa borist hingað úr dönsku eða þýsku, „Clementine“, og er einnig þekkt í ensku frá 19. öld. Það er leitt af karlmannsheitinu „Clement“, sem er dregið af latneska nafninu „Clēmēns“ (í eignarfalli „Clēmēntis“), sama uppruna og nafnið „Klemens“. Latneska lýsingarorðið „clēmēns“ merkir „mildur“.
Katharína er mynd af nafninu Katrín, komið af gríska nafninu Aikaterine. Sönn merking er óviss, en nafnið var snemma tengt orðinu „katharos“ („hreinn“).
Nafnið er samsett úr fyrri liðnum „Kristín“ og síðari liðnum „-björg“.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →