Raða eftir
Ian er skosk mynd af nafninu Jóhannes (John), enskuð úr gelíska nafninu Iain. Nafnið er af hebreskum rótum og merkir „Guð er náðugur“.
Illuminati er af latneska orðinu illuminati „hinir upplýstu“, af sögninni illuminare „að lýsa upp, upplýsa“.
Ísak er sótt til Biblíunnar en svo hét sonur Abrahams og Söru og faðir Esaú og Jakobs. Nafnið er af hebreskum uppruna, leitt af sögn sem merkir að „hlæja“. Nafnið merkir þá eiginlega „hann (þ.e. Guð) mun hlæja“ eða „megi Guð hlæja“. Ritmyndin „Isak“ hefur verið notuð um öll Norðurlönd um aldir, þekkist í Noregi og Danmörku frá 12. öld en í Svíþjóð frá lokum 13. aldar. Nafnið er einnig notað á Englandi ritað „Isaac“ og í Þýskalandi ritað „Isaak“ og „Isaac“.
Ívan er upphaflega rússnesk stytting af nafninu „Johannes“ og samsvarar íslensku nöfnunum Jóhann, Jóhannes og Jón. Nafnið tíðkast einnig á Norðurlöndum, í Englandi og Þýskalandi.
Uppruni nafnsins er óviss en hugsanlega er um gælunafn að ræða.
Nafnið kemur fyrir í Landnámu og Íslendinga sögum, meðal annars í Sturlungu og fornbréfum frá 14. og 15. öld. Einna þekktastur er Ívar Ingimundarson, skáld við hirð Eysteins konungs á 12. öld. Uppruni nafnsins er umdeildur; ef til vill leitt af „ýr“ sem merkir „ýviður, bogi“, sbr. „*iwa-hariR“ sem merkir „bogmaður“. Einnig hefur verið bent á að nafnið sé víxlmynd við Ingvar og Yngvar, þar sem sami maður hafi til forna bæði verið nefndur Ívarr og Yngvarr.
Nafnið er ef til vill af sama toga og „Ilyas“, sem er arabísk mynd hebreska nafnsins „Elijah“, er merkir „Guð minn er Jahve“. Það þekkist á Norðurlöndum, einnig ritað „Ilias“, á Bretlandseyjum, í Frakklandi og víðar í Evrópu, og er skylt nafninu „Elías“.
Uppruni nafnsins er óviss. Það er ef til vill skylt gríska nafninu „Illias“ sem merkir „Drottinn er Guð minn“, sbr. Ilías.
Nafn þetta er komið úr indverskri goðafræði. Það er sett saman af forliðnum "indu" sem merkir dropi og viðliðnum "ra" sem merkir að eiga. Indra er guð himins og regns. Nafnið gæti því merkt sá sem á regndropana, - sá sem stýrir regninu.
Nafnið er ef til vill af sama toga og „Ilyas“, sem er arabísk mynd hebreska nafnsins „Elijah“, er merkir „Guð minn er Jahve“. Það þekkist á Norðurlöndum, einnig ritað „Ilias“, á Bretlandseyjum, í Frakklandi og víðar í Evrópu, og er skylt nafninu „Elías“.
Nafnið var upphaflega gælunafn, ummyndun barns á nafninu „Grímur“.
Ismael er hebreskt nafn sem merkir „Guð bænheyrir“. Ísmael er nafn á tveimur mönnum í Biblíunni. Annar var sonur Abrahams og Hagar samkvæmt 1Mós., en hinn var herforingi sem drap Gedalja landstjóra í Júda samkvæmt Jeremía.
Ismaíl er arabísk mynd af nafninu Ishmael (Ísmael), af hebresku shama „heyra“ og el „Guð“; „Guð heyrir“.
Nafn þetta er komið úr hebresku þar sem það merkir "guð er með oss". Var þetta nafn notað um krist er spáð var fyrir um fæðingu hans í gamla testamentinu (Jesaja 7:14).
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "þór" sem merkir þrumuguðinn úr norrænni goðafræði.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "var" sem merkir gætinn, - varkár.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "valdur" sem merkir ræður yfir, - hefur stjórn á.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "ólfur" sem merkir úlfur.
Ungt nafn í íslensku sem er líklega tökunafn úr sænsku „Ingmar“, sama nafn og „Ingimar“.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "þór" sem merkir þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "valdur" sem merkir hefur vald á, - ræður yfir.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn, - gjöf.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "mar" sem merkir frægur.
Uppruni er óviss en nafnið er hugsanlega sett saman af forliðnum „Ing-“, „Ingi-“ og nafnorðinu „magn“ sem merkir kraftur, orka, eða síðari liður fenginn frá karlmannsnöfnunum „Magni“ eða „Magnús“.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "leifur" sem merkir arfur.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "björn" sem merkir bjarndýr.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "bjartur" sem merkir bjartur, - skínandi.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "bert" sem merkir bjartur, - skínandi.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "bergur" sem merkir bjargvættur.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "berg" sem merkir bjargvættur.
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Ingi" sem merkir konungur, - konungborinn og viðliðnum "berg" sem merkir bjargvættir.
Ýmist talið að nafnið sé samsett af töluorðinu "einn" og sögninni "að ríða" og merkir þá sá sem ríður einn, eða þá að það sé samsett af töluorðinu "einn" og sögninni "að ráða" og merkir þá sá hinn einráði.
Nafn þetta er samsett af lýsingarorðinu "illur" og nafnorðinu "hugur" og merkir hinn grimmlyndi.
Þetta pláss er laust. Náðu til foreldra og verðandi foreldra á Íslandi með markvissri auglýsingu hér.
Hafðu samband um auglýsingapláss →